The official website for the Glitnir hf.

haed_mjo.jpg

Íslenskar tilkynningar

Upplýsingar um skiptafund

E-mail Print

Boðað hefur verið til skiptafundar með kröfuhöfum Glitnis hf. kt. 550500-3530, Sóltúni 26, Reykjavík þriðjudaginn 31. janúar 2012 kl. 10.00 árdegis á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, Reykjavík. Boðað var til þessa fundar við lok síðasta kröfuhafafundar sem haldinn var 31. ágúst 2011.

Read more...
 

Fjárhagslegri endurskipulagningu Lyfju hf. lokið

E-mail Print

Glitnir hf. hefur gert samkomulag við Árkaup hf. eiganda Lyfju hf. um fjárhagslega endurskipulagningu Lyfju með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda. Með þessari aðgerð er starfsemi Lyfju tryggð og skuldir aðlagaðar greiðsluþoli fyrirtækisins.

Read more...
 

Skilanefnd Glitnis lýkur störfum

E-mail Print

Frá og með 1. janúar 2012 tók slitastjórn Glitnis formlega við öllum verkefnum skilanefndar bankans og hefur skilanefndin látið af störfum. Þetta er í samræmi við breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki nr.161/2002 sem samþykkt var á Alþingi í júní 2011 með lögum nr. 78/2011. Frá setningu laganna var unnið að því að færa verkefni frá skilanefnd til slitastjórnar þannig að skipulagsbreytingin gæti átt sér stað um áramót 2011/2012 án þess að valda truflun á starfsemi Glitnis. Þessi breyting gekk greiðlega og er nú að fullu lokið. Á þessum tímamótum er meðlimum skilanefndar Glitnis þökkuð vel unnin störf í þágu bankans á miklum umbrotatímum undanfarin rúm þrjú ár.

 

Glitnir greiðir upp lán hjá Seðlabanka Lúxemborgar

E-mail Print

Glitnir og Seðlabanki Lúxemborgar (BCL) gáfu út sameiginlega yfirlýsingu í dag um að búið sé að greiða að fullu eftirstöðvar skulda Glitnis við BCL.  Með því er mikilvægum áfanga náð í endurskipulagningu dótturfélags Glitnis í Lúxemborg.

Read more...
 

Athugasemd frá slitastjórn Glitnis

E-mail Print

Í tilefni af fréttum undanfarið um að svokallaðir vogunarsjóðir eigi meira en 60% í Íslandsbanka hf. og að þeir njóti meginhluta þeirrar aukningar sem orðið hefur á eignum bankans vill slitastjórn Glitnis árétta eftirfarandi:

Read more...
 

Árni Tómasson segir sig úr skilanefnd Glitnis

E-mail Print

Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis hefur ákveðið að segja sig úr skilanefndinni frá og með 1. október næst komandi. Til að tryggja sem mesta samfellu í starfsemi Glitnis hefur hann fallist á þá ósk slitastjórnar að sitja áfram í stjórn Íslandsbanka og að aðstoða við söluferli á eignarhlut í bankanum auk þess að gegna tilfallandi störfum sem slitastjórn kann að óska eftir vegna fyrri starfa hans fyrir Glitni.

Read more...
 

Ársreikningur Glitnis hf. árið 2010

E-mail Print

Verðmat eigna Glitnis hækkaði úr 808 milljörðum króna í upphafi árs 2010 í 814 milljarða í árslok 2010, eða um 1%. Verðmat eigna Glitnis í evrum hækkaði aftur á móti um 18%, eða úr 4.493 milljónir evra í 5.295 milljónir evra. Styrking krónunnar á árinu 2010 skýrir þessar mismunandi niðurstöður á mati eigna eftir myntum.

Read more...
 

Glitnir hf. tekinn til formlegrar slitameðferðar

E-mail Print

Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem birtur var í gær hefur Glitnir hf. verið tekinn til formlegrar slitameðferðar. Íslensk lög kveða á um að greiðslustöðvun ljúki sjálfkrafa þegar formleg slitameðferð hefst. Skilanefnd og slitastjórn bankans óskuðu sameiginlega eftir því í Héraðsdómi Reykjavíkur að Glitnir hf. yrði tekin til formlegrar slitameðferðar til að tryggja að bankinn njóti sömu verndar gegn lögsóknum, þvingunarúrræðum og öðrum ráðstöfunum eigna sem fengin var á greiðslustöðvunartímabilinu.

Read more...
 

Tilkynning frá Glitni: Réttarhöldum frestað

E-mail Print

Réttarhöldum yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og fleirum sem fara áttu fram í dag, þann 9. nóvember, í New York fylki, BNA, hefur verið frestað. 

Réttarhöldunum var frestað til að gefa málsaðilum tækifæri til að leggja fram frekari greinagerðir til að koma að athugasemdum um skjöl sem nýverið hafa  komið í leitirnar og hafa verið efni bréfaskipta milli málsaðila og dómstólsins undanfarnar tvær vikur.

Þá hafa varnaraðilar tekið fram að þeir muni draga til baka lögfræðiálit Brynjars Níelssonar og að þeir muni leggja fram aðra yfirlýsingu frá íslenskum sérfræðingi, og verður nafn hans kynnt síðar. Glitnir mun tilkynna um nýja dagsetningu á réttarhöldunum þegar málsaðilar og dómstóllinn hafa komið sér saman um hana.

 

Tilkynning frá slitstjórn Glitnis

E-mail Print
Glitnir svaraði í gær í New York frávísunarkröfum sem Jón Ásgeir Jóhannesson og aðrir, sem stefnt var í máli bankans í New York, lögðu fram í júlí. Í svari sínu ítrekaði Glitnir þann eindregna ásetning sinn að fylgja eftir málarekstrinum í New York, enda væri hann liður í viðleitni bankans um heim allan til að endurheimta eignir í þágu kröfuhafa bankans.  Í stefnu málsins í New York er því haldið fram að stefndu hafi veitt þeim fjármunum sem um ræðir út úr bankanum áður en hann féll.

Í svörum Glitnis er m.a. að finna eiðfestar yfirlýsingar frá nokkrum fyrrum starfsmönnum bankans. Glitnir er staðráðinn í því að elta uppi höfunda þess ráðabruggs sem lýst er í stefnu málsins í New York og vill koma á framfæri þökkum fyrir stuðning Íslandsbanka og samstarfsvilja og sannsögli þeirra sem áður störfuðu hjá Glitni.

 
  • «
  •  Start 
  •  Prev 
  •  1 
  •  2 
  •  Next 
  •  End 
  • »
Page 1 of 2

Latest News

On the Agenda

Creditors meeting - 31 January 2012