The official website for the Glitnir bank

Eignarhald dótturfélaga Glitnis fært undir GLB Holding

E-mail Print

Eignarhald á dótturfélögum Glitnis, sem hafa með höndum fjármála-og vátryggingastarfsemi hefur verið fært undir eitt eignarhaldsfélag, GLB Holding.  Félagið er að fullu í eigu Glitnis. Þessi skipulagsbreyting er gerð meðal annars til að fullnægja skilyrðum Fjármálaeftirlitsins, sem þann 30. desember síðast liðinn veitti ISB Holding,  leyfi til að fara með 95% eignarhlut Glitnis í Íslandsbanka.  Áður hafði Samkeppniseftirlitið veitt samþykki sitt. 

Eignarhaldsfélagið GLB Holding er fjárhagslega mjög sterkt félag en eigið fé þess er 96,5 milljarðar íslenskra króna og  er eiginfjárhlutfall 100%. GLB Holding er því  afar öflugur bakhjarl þeirra fyrirtækja sem eru á forræði Glitnis og starfa á sviði  fjármála og vátrygginga. Stjórn GLB Holding skipa Heimir V. Haraldsson formaður,  Þórdís Bjarnadóttir og Kristján Óskarsson. Heimir og Þórdís sitja í skilanefnd Glitnis en Kristján er framkvæmdastjóri Glitnis. Framkvæmdastjóri GLB Holding er Ingólfur Hauksson fjármálastjóri Glitnis.

Ennfremur  hefur verið skipuð stjórn ISB Holding. Í samræmi við skilyrði Fjármálaeftirlitsins er hún að meirihluta skipuð stjórnarmönnum sem eru óháðir Glitni, stórum kröfuhöfum og Íslandsbanka.   Í stjórn ISB Holding sitja Ólafur Ísleifsson, lektor við HR, formaður, Ásta Þórarinsdóttir, hagfræðingur, og María B. Ágústsdóttir framkvæmdastjóri ISB Holding og starfsmaður skilanefndar Glitnis. Varamaður í stjórn ISB Holding er Reynir Kristinsson viðskiptaráðgjafi.

Skipurit

 

 

On the Agenda

24 November 2010 Moratorium of Glitnir bank ends

2 December 2010 Creditors meeting