The official website for the Glitnir hf.

This is the official homepage of
Glitnir hf. where information
will be revealed during the
Winding up proceedings.

Read more

login_for_creditors

Skilanefnd Glitnis fær frest til 15. október til þess að nýta kauprétt

Fjármálaráðuneytið hefur samþykkt beiðni skilanefndar Glitnis, fyrir hönd kröfuhafa, um frest til 15. október nk. til að taka endanlega ákvörðun um aðkomu kröfuhafa Glitnis að Íslandsbanka.

Samkvæmt samningum milli ríkisins og skilanefndarinnar, sem undirritaðir voru 13. september s.l., var kveðið á um að skilanefnd Glitnis hefði frest til 30. september til að ákveða hvort Glitnir eignist 95% hlutafjár í Íslandsbanka eða fái greiðslu í formi skuldabréfa útgefnum af Íslandsbanka.

Nýverið hefur Íslandsbanki lagt fram nauðsynlegar upplýsingar um rekstur og fjárhagsstöðu bankans, en skilanefndin vill fá ráðrúm til að fara nánar yfir þær upplýsingar og bera undir kröfuhafa áður en endanleg ákvörðun er tekin.

Fjármálaráðuneytið hefur jafnframt ákveðið að veita ekki frekari frest í málinu þar sem talið er að nægilegar fjárhagslegar upplýsingar liggi nú fyrir.

 

More News

On the Agenda

Creditors meeting - 31 January 2012